Herbergisgerð Netbókun
Komudagur
Nætur
Forsíða Prenta Senda fyrirspurn Veftré Stækka letur Eðlilegt letur Leita


REYKHÓLAHREPPUR
Reykahólahreppur nær yfir alla Austur-Barðastrandarsýslu og er einungis í rúmlega 200 km fjarlægð frá Reykjavík (350 km frá Akureyri). Hjá okkur er að finna mjög fjölbreytt og fallegt landslag sem vekur athygli allra sem um Reykhólahrepp fara. Mikið fuglalíf er í sveitinni, enda er hér einhver mesti munur flóðs og fjöru á Íslandi.Reykhólaflorp er á Reykhólum, 14 km frá sumarhótelinu a> Bjarkalundi. Reykhólar eru sögufræg jörð og þar er mikil náttúrufegurð. Á Reykhólum er góð sundlaug. Sumarið 2002 var opnuð þar mjög áhugaverð hlunnindasýning þlar sem sjá má nýtingu hlunninda til lands og sjávar frá landnámsöld til nútímans.Gistiheimilið Álftaland er á Reykhólum. Þar er heitur pottur og gufubað, góð aðstaða fyrir fatlaða og tjaldstæði. Opið er allt árið.
Þörungaverksmiðja, sú eina á landinu, er starfrækt í Karlsey og hafa mikil mannvirki verið reist þar. Verksmiðjan nýtir þörungagróðurinn á grunnsævi Breiðafjarðar og jarðhitann til að þurrka þang- og­ þaramjöl. Þangið er skorið með fljótandi sláttuvélum, safnað í net og flutt á skipi til verksmiðjunnar.. Á Reykhólum er einnig rekin upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og þlar er að finna merktar gönguleiðir. Fyrir ofan Bjarkalund eru hin formfögru Vaðalfjöll sem setja mikinn svip á héraði.

Sagan
Reykhólar standa yst á Reykjanesskaga milli Berufjarðar og Þorskafjarðar. Staðurinn er sögufrægur og á þjóðveldisöld var Reyknesingagoðorð eitt þriggja goðorða á Vestfjörðum. Reykhólar koma við sögu í ýmsum fornsögum, m.a. Grettissögu. Sagt er að Grettir hafi borið naut frá sjó að bæ og er það nokkurra kílómetra leið. Þar er einning sundlaug kennd við Gretti. Á Reykhólum hafa búið merkir höfðingjar og voru þeir margir hverjir auðugir og valdamiklir. Reykhólar tilheyra landnámi Úlfs hins skjálga. Á svæðinu er jarðhiti, einn sá mesti á Vestfjörðum og til forna var stunduð þar kornyrkja.
Í upphafi 19. aldar fæddist á Reykhólum eitt af höfuðskáldum Íslendinga, Jón Thoroddsen. Stutt norðan við Reykhóla er bærinn Miðhús þar sem Gestur Pálsson rithöfundurinn fæddist. Frá fornu fari hefur verið verslun á Reykhólum og þar má finna stíg að gamalli kaupmannaleið.

Smellið hér til að fara á vef Reykhólahrepps