Reykhólasveit
Reykhólasveit er rómuð fyrir náttúrufegurð og fuglalíf. Þar eru Reykhólar, sögufrægt höfuðból, eitt sinn taldir besta bújörð landsins með miklum hlunnindum. Um 300 eyjar lágu undir jörðina, þar var kornyrkja á miðöldum. Reykhóla er víða getið í fornsögunum. Þar hefur nú myndast þéttbýli og er Þörungavinnslan helsta atvinnufyrirtækið. Þegar ekið er af aðalveginum út að Reykhólum er farið um Barmahlíð, sem Jón Thoroddsen kvað um: „Hlíðin mín fríða ...”
Íbúafjöldi 1. des. 2004 var 260.
Á gönguleiðakorti um Reykhólasveit er gerð grein fyrir níu aðalleiðum auk stuttra gönguleiða. Verður hér getið tveggja leiða: Vaðalfjöll. Gengið er eftir vegarslóða, rétt fyrir austan Bjarkalund. Vaðalfjöll eru tveir formfagrir bergstandar, sem best er að fara upp á að vestan.Ganga má sömu leið til baka eða í vesturátt þar til komið er að gamla þjóðveginum og eftir honum í átt að Kinnarstöðum og þaðan að Bjarkalundi. Reykhólar. Gönguleið er um Einreykjastíg frá sundlaug að Einreykjahver og er þar malarstígur ásamt trébrúm yfir votlendi, þar sem fuglalíf er fjölskrúðugt. Gengið er með skurði og síðan meðfram læk að söluskálanum Arnhóli. Einnig er göngustígur við Mávavatn og skemmtilegt er að koma að gömlu bátavörinni.
Reykhólasveit er fagurt landslag. Þar eru fjöll, heiðar, hverasvæði og margar eyjar. Fjallshlíðar víða blómum, grasi og kjarri vaxnar og er þar mikið berjaland á haustin. Miðsvæðis eru Vaðalfjöll og af þeim sést til sjö sýslna. Í Reykhólasveit er óvenju fjölbreytilegt fuglalíf og er þar paradís fuglaskoðara. Álftin, stærsti íslenski fuglinn, verpir víða í þessum landshluta. Aðalvarpstöðvar konungs fuglanna, hafarnarins, eru á þessu svæði.
Borgarland
Borgarland er á mótum Berufjarðar og Króksfjarðar. Þar eru sérkennilegar klettaborgir, gamlir berggangar. Bjartmarssteinn (Pjattarsteinn) er syðst á nesinu, gígtappi um 55 m hár og 100 m í þvermál. Þar segir þjóðtrúin að sé kaupstaður huldufólksins við Breiðafjörð. Hægt er að komast þangað með því að aka frá bænum Borg eftir vegarslóða niður í fjöru. Síðan er fjaran gengin að Bjartmarssteini. Reykhólasveit. Á gönguleiðakorti um Reykhólasveit er gerð grein fyrir níu aðalleiðum auk stuttra gönguleiða. Verður hér getið tveggja leiða: Vaðalfjöll. Gengið er eftir vegarslóða, rétt fyrir austan Bjarkalund. Vaðalfjöll eru tveir formfagrir bergstandar, sem best er að fara upp á að vestan.Ganga má sömu leið til baka eða í vesturátt þar til komið er að gamla þjóðveginum og eftir honum í átt að Kinnarstöðum og þaðan að Bjarkalundi. Reykhólar. Gönguleið er um Einreykjastíg frá sundlaug að Einreykjahver og er þar malarstígur ásamt trébrúm yfir votlendi, þar sem fuglalíf er fjölskrúðugt. Gengið er með skurði og síðan meðfram læk að söluskálanum Arnhóli. Einnig er göngustígur við Mávavatn og skemmtilegt er að koma að gömlu bátavörinni.